Aukafjárveiting vegna skattaskjóla

Bjarni Benediktsson fjármálaráðhera kynnti ríkisstjórninni á fundi hennar í morgun beiðni sína um aukafjárveitingu til að kaupa skattagögn úr skattaskjólum, en þau hafa verið mjög til umræðu á síðustu vikum - og Bjarni raunar sakaður um að draga lappirnar í þeim efnum. Sjálfur hefur hann tekið af allan vafa um það í viðtölum að skattsvik verði ekki liðin á hans vakt - og nú er beiðnin um kaup á gögnunum komin fram.



Gögn þessi úr skattaskjólum hafa boðist íslenskum stjórnvöldum til kaups í all langan tíma fyrir 150 milljónir króna. Í tilkynningu frá fjármála- og efnahagsráðuneytinu fyrr í vetur kom fram að málin séu 416 og að einnig bjóðist að kaupa gögn um hvert mál fyrir sig fyrir um 380 þúsund krónur.

 

Skattagögnin hafa verið til athugunar hjá embætti skattrannsóknarstjóra um margra mánaða skeið en þau varða fjármálalegar eignir íslenskra aðila í þekktum skattaskjólum. Meðal þess sem til skoðunar hefur verið er hvaða þýðingu slík gögn gætu haft fyrir þau verkefni sem embættið sinnir, hvort þeir sem hafa boðið gögnin séu til þess bærir að selja þau og hvort unnt yrði að árangurstengja greiðslu fyrir gögnin, líkt og fordæmi eru fyrir og embætti skattrannsóknarstjóra hafði áður talið koma til álita. Fyrir liggur að það er niðurstaða embættis skattrannsóknarstjóra eftir skoðun á sýnishorni af þeim upplýsingum sem boðnar hafa verið að kaup á gögnum geti mögulega nýst embættinu.

 

Í ljósi þessa hefur ráðherra nú afráðið að kaupa gögnin í krafti aukafjárveitingar.