Íslensk framleiðslufyrirtæki verða að auka útflutning sinn um að minnsta kosti eitt þúsund milljarða króna fram til ársins 2030 ef Ísland á ekki að dragast aftur úr öðrum þjóðum í norðvestanverðri Evrópu sem Íslendingar bera sig einna helst saman við hvað lífskjör varðar. Þetta kom fram í máli Ragnheiðar Elínar Árnadóttur atvinnuvegaráðherra á nýafstöðnu Iðnþingi Samtaka iðnaðarins. Þar var meðal annars rætt um miklvægi þess að sækja fram á sviði nýsköpunar, menntunar og framleiðni til að ná þessum markmiðum en ítrekað hefur verið bent á að ef aukinn kraftur er ekki settur í þessa þrjá þætti er hætt við að Ísland verði ekki lengur samkeppnisfært við önnur lönd innan OECD. Vandinn er að auki sá að fjárfesting er ennþá lítil í landinu, einkum á vegum erlendra fyrirtækja sem skýrist bæði af óstöðugleika í efnahagsmálum og langtum verri vaxtakjörum sem fyrirtækjum hér á landi býðst í samkeppni sinni við framleiðslu á erlendum markaði.
Auka þarf útflutning um 1000 milljarða
Fleiri fréttir
Nýjast