Laun til listamanna: meira gagnsæi, takk!

Bryndís Loftsdóttir, formaður stjórnar Launasjóðs listamanna segist vilja auka gagnsæi og auka upplýsingagjöf um úthlutanir til listamanna, en nýleg kynning á listamannalaunum kallað á mikla umræðu í samfélaginu.

Bryndís segir úthlutanir fara fram á vettvangi Rannís og tekur undir að þeim svipi helst til úthlutana rannsóknastyrkja með þeim hætti sem öðlast hefur sess í háskólastarfi.

Þetta kom fram í samtali hennar við Ólafana og Magnús Guðmundsson, ritstjóra menningar á Fréttablaðinu, en þátt Ólafanna, sem verður endursýndur í dag og um helgina, er einnig hægt að nálgast hér á vef stöðvarinnar. 

Magnús segir þar að opinber framlög til menningar og úthlutun til listamanna beri fremur að líta á sem fjárfestingu til framtíðar en tímabundin útgjöld enda veki menningarlíf Íslendinga athygli langt út fyrir landsteinana og laði hingað ferðamenn.