Íslandsstofa áformar nú að auka kynningu á Íslandi sem ferðamannastað í Ísrael.
Sérstök Íslandskynning og vinnustofur í Ísrael eru nú skipulagðar af hálfu Íslandsstofu.
Stofan óskar nú eftir áhugasömum til að taka þátt þar í landi núna í September og er áætlar að halda funsina í Tel Aviv og Jerúsalem. Íslandsstofa er í samvinnu við The Israel Association of Travel Agencies & Consultants.
Tilgangur fundanna, segir í tilkynningu, er að kynna heimamönnum framboð á þjónustu við ferðamenn á Íslandi í ljósi þess að boðið verður upp á beint flug Wow air á milli Keflavíkur og Tel Aviv frá 12. september næstkomandi.
Ekki hefur áður verið boðið upp á beint áætlunarflug til Ísrael frá Íslandi. WOW air sótt um leyfi fyrir sex vikulegum flugferðum til Ben Gurion flugvallarins í höfuðborg Ísraels, Tel Aviv.