Auka líkur á andlega þroskaðri börnum

Barnshafandi konur sem borða 340 g eða meira af fiskmeti á viku auka líkurnar á að eignast bæði greindari og félagslega þroskaðri börn. Þetta kemur fram í nýrri rannsókn. 

Heilsutorg.is greinir frá þessu. 11.875 barnshafandi konur í Bretlandi tóku þátt í rannsókninni sem var á vegum Avon Longitudinal Study of Parents and Children. Neysla fiskmetis var rannsökuð hjá konunum og í kjölfarið var greindarvísitala ásamt hegðunar- og félagsþroska metin hjá börnum þeirra frá sex mánaða til átta ára aldurs.

Fiskmeti er algengasta uppspretta Omega-3 fitusýra sem eru mikilvægur þáttur í þroska taugakerfisins og heilans. Samkvæmt niðurstöðum rannsóknarinnar voru börn mæðra sem borðuðu minna en 340 g af fiskmeti á viku líklegri til að hafa lakari heila- og taugaþroska en börn mæðra sem borðuðu ráðlagðan dagskammt af fiskmeti á meðgöngunni. 

Rannsóknin sýndi enn fremur fram á að 12% kvennanna borðuðu yfir höfuð ekki fiskmeti á meðgöngunni, 65% borðuðu 1-340 g á viku en 23% neyttu að minnsta kosti 340 g á viku.