Borgarráð samþykkti í dag að auka framlög til sérkennslu í leik-og grunnskólaum og sömuleiðis til efniskostnaðar og faglegs starfs. Einnig mun fjármagn til hráefniskaupa aukast með hækkun fæðisgjalda.
Aðgerðaráætlun í leik- og grunnskólum var kynnt í dag á blaðamannafundi í Ráðhúsinu. Greint var frá því hvernig eigi að koma til móts við vanda leikskólanna í borginni.
Varðandi skólamatinn segir í fréttatilkynningu: „Gjöld vegna mataráskriftar í skólum sem foreldrar greiða munu hækka til að bæta matinn í skólunum og renna tekjurnar alfarið til skólamötuneyta í kaup á hráefni. Reykjavík verður þá með mjög sambærilega gjaldskrá vegna mataráskriftar við þau sveitarfélög sem leggja mest í hráefnisframlög til skólamötuneyta. Leikskólagjöld og önnur gjöld vegna skólagöngu barna verða engu að síður áfram þau lægstu á höfuðborgarsvæðinu.‘“
Þá verður gert sameiginlegt átak í því að gera störf á leikskólum eftirsóknarverðara. Borgaryfirvöld muni í samstarfi við fagfélög leikskólafólks og félag foreldra leikskólabarna vinna í átakinu.
Rúmlega 70 stöðugildi þarf að manna á leikskólunum eins og staðan er nú.