Augun af veginum í fimm sekúndur

„Það var gerð alveg stórmerkileg rannsókn í Bandaríkjunum þar sem var fylgst u.þ.b. 3000 ökumönnum í þrjú ár. Niðurstaða þeirrar rannsóknar er meðal annars að þú hefur augun af veginum í að meðaltali fimm sekúndur þegar þú ert að leyfa þér að lesa skilaboð eða að senda eða skrifa skilaboð. Ef þú ert á 88 kílómetra hraða, sem er ekkert óalgengt á stofnbrautum eða utan þéttbýlis, þá er þetta eins og að aka yfir heilan fótboltavöll,“ segir Einar Magnús Magnússon, sérfræðingur hjá Samgöngustofu.

Einar Magnús og Guðmundur Heiðar Helgason, upplýsingafulltrúi Strætó, voru gestir Sigmundar Ernis í frétta- og umræðuþættinum 21 í gærkvöld, þar sem þeir ræddu Höldum fókus átakið.

Höldum fókus átakið miðar að því að fá fólk til að hætta notkun snjallsíma við akstur. Samgöngustofa, Strætó, Sjóvá standa að átakinu með faglegri og tæknilegri leiðsögn Tjarnargötunnar. „Það er oft talað um að aka undir áhrifum snjallsíma,“ segir Guðmundur Heiðar, sem segist sjálfur ósjálfrátt teygja sig í vasann þegar hann fær skilaboð í símann við akstur en að hann þurfi að stoppa sig af. Þetta sé vani sem þurfi að venja sig af.

Einar Magnús spyr hvort það sé þess virði að hafa enga athygli á því sem er að gerast fyrir framan þig í fimm sekúndur á háum hraða þegar skilaboðin sem um ræðir séu mjög gjarna lítilfjörleg að inntaki. „Myndi einhverjum detta í hug að keyra á 88 úti á landi með bundið fyrir augun í fimm sekúndur?“ bætir Guðmundur Heiðar við.

„Þetta er aldrei áhættunnar virði og það er einmitt það sem Höldum fókus gengur út á,“ segir Einar Magnús.

Viðtalið við Einar Magnús og Guðmund Heiðar í heild sinni er að finna hér: