Augnþurrkur tíður hjá miðaldra konum

Augnþurrkur var á meðal umræðuefna í lífsstílsþættinum Heilsutímanum á Hringbraut í gærkvöld, en þessi kvilli er mun algengari en fólk almennt gerir sér grein fyrir.

Umsjárkonan Gígja Þórðardóttir heimsótti Jóhannes Kára Kristinsson, augnlækni sem hefur áhyggjur af þurrki í augum og segir að umhverfisþættir á Íslandi séu augum ekki hliðhollir og að þurrkur í augum sé algengur hjá hinum ýmsu sjúkdómahópum og á breytingaskeiði kvenna.

Athyglisverðar upplýsingar komu fram um þennan algenga kvilla, en þáttinn má sjá hér á hringbraut.is.

Svava Jónsdóttir heilsu- og mannauðsráðgjafi fjallaði um heilsueflandi vinnustaði sem er meira en matur og hreyfing, hvernig heilsuefling á vinnustað hefur þróast frá heilsuátaki yfir í hugmyndafræði um stjórnunaraðferðir þar sem áherslan er á samstarf og aukið jafnvægi, ábyrgð starfsfólks til þátttöku í að gera vinnustaðinn enn betri og frískari til framtíðar. Streitan fléttast inn í þessa þætti á þann veg að ef við stjórnum betur huglæga vinnuumhverfinu, samskiptunum og skipulagi vinnunnar þá minnkar álagið og streitan, starfsfólki líður betur, er ánægðara og meir líkur eru á að ná árangir og markmiðum vinnustaðarins.
 
Áhorfendur fengu svo flotta fræðslu frá Hildi Kristínu sjúkraþjálfara og eins var kíkt í heimsókn á Hilton Reykjavík Spa þar sem námskeið fyrir fólk sem er 60 ára og eldra fer af stað í næstu viku. Agnes Þóra Árnadóttir næringarfræðingur og Ragnheiður K Guðmundsdóttir framkvæmdastjóri sögðu áhorfendum frá þessu merkilega námskeiði.
 
Það var sumsé eitthvað fyrir alla í Heilsutímanum í gærkvöld, sem er frumsýndur öll mánudagskvöld klukkan 20:00, en hann er unninn í samvinnu við Fréttatímann.