Kvartanir hafa borist Matvælastofnun frá Lyfjastofnun, lyfsölufyrirtækjum og Neytendastofu vegna nýrrar vöru frá Lýsi hf. sem heitir Fríar fitusýrur og þorskalýsi. Fullyrðingar um vöruna eru ekki sagðar standast skoðun en fullyrt var að fríar fitusýrur dræpu kórónaveirur og að inntaka lýsisins gæti dregið úr smithættu.
Samkvæmt svari Matvælastofnunar við fyrirspurn Eyjunnar var Lýsi hf. sent erindi vegna málsins þar sem greint var frá því að auglýsingaefnið væri talið brot á reglum um miðlun upplýsinga til neytenda. „Þar kemur fram að Matvælastofnun telji auglýsingarnar/kynningarefnið vera brot á m.a. reglugerð um miðlun upplýsinga til neytenda (merkingareglugerð), reglugerð um næringar og heilsufullyrðingar vegna matvæla (þ.m.t. fæðubótarefna) og reglugerð um fæðubótarefni,“ segir í svari Matvælastofnunar.
„Bréf var sent til fyrirtækisins með þessum athugasemdum og því hefur þegar verið svarað. Fyrirtækið hefur sagst muni hætta þessari kynningu á vörunni. Auglýsingar á heimasíðu Lýsis hafa verið fjarlægðar og fyrirtækið mun koma þessu á framfæri við þá aðila sem selja vöruna.“
Formaður Neytendasamtakanna sagði þá að mikil aukning hafi orðið í tilkynningum sem varða vörur sem eigi að sporna gegn eða lækna kórónaveiruna. Þær séu þó ekki á rökum reistar.
Fríar fitusýrur og þorskalýsi er vara sem Lýsi hf. framleiðir í samstarfi við Lipid Pharmaceuticals.