Ég hef aldrei á ævinni kynnst öðrum eins lygara. Það er ekki hægt að treysta einu orði sem hann segir,“ segir fyrrverandi starfsmaður veitingastaðarins LOF í samtali við DV, en hann segist eiga inni laun upp á eina milljón hjá fyrirtækinu. Umræddur meintur lygari er Jakob Helgi Bjarnason, framvæmdastjóri Sambands ungra Sjálfstæðismanna og prókúruhafi fyrirtækisins. LOF veitingahús var opnað með pomp og prakt um miðjan apríl en var lokað rúmum tveimur mánuðum síðar. Það er líklega einhvers konar met á hinum sviptingasama íslenska veitingamarkaði.
DV fjallaði um lokunina fyrir tveimur vikum og þá staðreynd að fjölmargir starfsmenn fyrirtækisins sem og birgjar þess sætu eftir með sárt ennið. Þrátt fyrir fögur fyrirheit um annað hafa birgjar og starfsmenn ekki enn fengið greitt en húsnæði veitingastaðarins hefur nú verið auglýst til sölu eða leigu. Ýmis tæki og tól, sem aldrei var greitt fyrir, eru sögð fylgja með eigninni.
Nánar á