Óska eftir áfengis – og vímuefnaráðgjöfum

SÁÁ auglýsir lausar stöður nema í áfengis- og vímuefnaráðgjöf við Sjúkrahúsið Vog.

Í tilkynnginu SÁÁ stendur:

 Með reglugerð frá árinu 2006 varð til ný heilbrigðisstétt með heitinu áfengis- og vímuefnaráðgjafi. Með henni var viðurkennd staða og nám þeirra áfengis- og vímuefnaráðgjafa innan heilbrigðisþjónustunnar sem unnið höfðu hjá SÁÁ árum saman og fengið þar kennslu og handleiðslu. Starfið og námið var að fyrirmynd frá Bandaríkjunum og á upphafsárum SÁÁ sóttu ráðgjafar og kennarar þeirra hjá SÁÁ þekkinguna á ráðstefnur og í heimsóknum til mismunandi meðferðarstofnana þar. Ráðgjafaskipti fóru einnig fram milli ýmissa meðferðarstofnana og SÁÁ.

Strax frá upphafi sótti fjöldi frumkvöðla og forystumanna áfengis- og vímuefnameðferðar í Bandaríkjum Norður-Ameríku SÁÁ heim og miðlaði starfsmönnunum af reynslu sinni og þekkingu. Kennsla og þjálfun áfengis- og vímuefnaráðgjafa mótaðist og komst í nokkuð fastar skorður á árunum 1980-1990.

Á árinu 2003 hófst formleg samvinna við NAADAC (Samtök Áfengis- og vímuefnaráðgjafa í Bandaríkjunum) 

 Námið fer fram á heilbrigðisstofnunum SÁÁ samhliða starfsþjálfun. Starfið felur í sér þátttöku í áfengis- og vímuefnaráðgjöf undir handleiðslu og innifelur m.a. vaktskyldu, samskipti og þjónustu við sjúklinga.

Nánar hér