Auglýsa 15 fermetra smáhýsi sem starfsmannaíbúð - um tveir og hálfur fermeter á mann

Fyrirtækið Jötunn byggingar á Selfossi, auglýsir þessa daganna lítið 15 fermetra smáhýsi til sölu. Auglýsingunum er meðal annars deilt á Facebook. Smáhýsið er auglýst sem lausn við mörgu, til dæmis sem starfsmannaíbúð. Í auglýsingunni sést hvernig hægt er að útbúa smáhýsið.

Á einni myndinni sést hvernig þremur kojum er komið inn í smáhýsið, sem þýðir gistirými fyrir sex manneskjur. Það samsvarar um tveimur og hálfum fermetra sem hver einstaklingur hefur fyrir sig. Baðherbergi er í smáhýsinu með einu klósetti og einum vask. Á myndinni sést einnig að pláss er fyrir einn skáp fyrir starfsmennina.

Undanfarin ár hafa verið fréttir færðar af slæmri aðstöðu erlendra verkamanna hér á landi. Mikið er um að erlendum verkamönnum sé mörgum saman troðið inn í litlar íbúðir, þá oftast í ósamþykkt húsnæði í iðnaðarhverfum. Jafnvel hefur komið upp um verktakafyrirtæki sem láta verkamenn sofa í gámum á vinnusvæðinu sjálfu.

Myndina má sjá hér að neðan.

\"\"