Augljós merki um aukna þenslu

Velta í virðisaukaskattskyldri starfsemi í september og október 2015 nam 640 milljörðum króna, sem er 3,4% aukning miðað við sama tímabil árið 2014, að því er fram kemur í nýjum tölum Hagstofu Íslands.

Tölurnar eru til merkis um aukna þenslu í samfélaginu.

 

Á síðustu 12 mánuðum hefur veltan aukist mest í rekstri gististaða og veitingastaða (19%) og í byggingastarfsemi og mannvirkjagerð (18%), samanborið við 12 mánuði þar á undan.

Veltuaukningin er minnst í landbúnaði af öllum atvinnugreinum.