Auðvelt að endurnýta álið

Ekki einungis rúntum við um á rafbíl í þætti kvöldsins um umhverfismál. Í þættinum Súrefni ræðum við líka við Líf Lárusdóttur, verkefnisstjóra Gamaþjónustunnar um endurvinnslu á áli en fyrirtækið tók þátt í nýlegu átaki Samáls sem snerist um að endurvinna utan af sprittkertum. Linda ræðir við Líf hvað litlu hlutirnir gera orðið stórir.

Umhverfismál snúast líka um samfélagslega ábyrgð og Pétur Einars hitti Fríðu Kolbrúnar Þorkelsdóttur sem stofnaði fb síðu um „sanngjörn vöruskipti“. Fríða segir frá því hvað ungu fólki er aðallega hugleikið en á síðunni kemur fram margt varðandi umhverfismál og hvað ungt fólk vill gera í málunum í þágu umhverfisverndar.

Umsjón með þættinum hafa Linda Blöndal og Pétur Einarsson. Þátturinn er á dagskrá á mánudagskvöldum Kl.20.30.