Rithöfundurinn Auður Jónsdóttir, sem mætti í lestrarhestaþáttinn Bókin sem breytti mér á Hringbraut í gærkvöld tók ekki með sér eina einustu bóka afa síns og nóbelsskáldsins Halldórs Kiljan Laxness til að fjalla um í þættinum.
\"Það hefði verið full til kjánalegt,\" sagði hún í samtali sínu við Sigmund Erni um þær bækur sem hafa haft hvað mest áhrif á hana um dagana, en viðurkenndi þó þegar á hana er leitað að vissulega þætti henni afar vænt um bækur á borð við Sölku Völku og Heimsljós.
60 ár eru nú liðin frá því Halldór hreppti Nóvbelsverðlaunin í bókmenntum.
Bækur Braga Ólafssonar, Steinars Braga og Kristínanna Eiríksdóttur og Ómarsdóttur reyndust Auði hugleiknar í þættinum í gær, svo og sögur vinkonu hennar Guðrúnar Evu Mínervudóttur, en sá rithöfundur sem kom henni líklega fyrst af stað var að hennar sögn Einar Kárason, en hún kolféll fyrir Eyjabókunum hans strax sem krakki í grunnskóla.
Bókin sem breytti mér er frumsýnd á fimmtudagskvöldum en einnig sjáanleg hér á hringbraut.is.