Auður klipptur út úr Ófærð – Taka þarf upp ný atriði þegar Baltasar kemur til landsins

Tónlistarmaðurinn Auðunn Lúthersson, best þekktur sem Auður, verður klipptur út úr þriðju seríu þáttanna Ófærð sem sýndir verða á RÚV. Greint er frá þessu á vef RÚV.

Auður viðurkenndi fyrr í sumar að hafa farið yfir mörk konu árið 2019 eftir að fjölmargar ásakanir komu fram á hendur honum.

„Ég veit ekki alveg hvernig næstu vikur eða mánuðir verða en ég veit að ég þarf að setja áframhaldandi sjálfsvinnu í forgang og ekki sinna öðru á meðan,“ sagði hann í yfirlýsingu.

Auður missti einnig hlutverk sitt í Rómeó og Júlíu í Þjóðleikhúsinu og lög hans tekin úr spilun í útvarpinu.

Auður lék hlutverk í næstu þáttaröð Ófærðar og var búið að taka upp senur hans áður en málið komst upp. Framleiðandi þáttanna sagði við RÚV að hann hefði sjálfur óskað eftir að vera fjarlægður úr þáttunum, taka þarf upp einhver atriði á ný þegar Baltasar Kormákur, leikstjóri, kemur til landsins.