Heimili sem greiddu auðlegðarskatt fengu samtals hálfan annan milljarð króna út úr skuldaleiðréttingaaðgerðum ríkisstjórnarinnar. Tekjuhæstu heimilin fengu hæstu leiðréttinguna, sem skýrist af hærri skuldum þess hóps.
Þetta kemur fram í skýrslu fjármálaráðuneytisins um skuldaaðgerðir ríkisstjórnarinnar sem birt var á vef Alþingis í morgun, en þar kemur fram að alls hafi borist 69 þúsund umsóknir um lækkun höfuðstóls verðtryggðra lána vegna áranna 2008 og 2009 frá samtals 105 þúsund fullorðnum einstaklingum. Meðallækkun þeirra 90 þúsund einstaklinga sem reyndust eiga rétt á leiðréttingu nam 1.220 þúsund krónum.
Í skýrslunni er ráðstöfun leiðréttingarinnar greind eftir þjóðfélagshópum og kemur þá í ljós að þeir sem eru samskattaðir, til að mynda hjón og sambúðarfólk, fengu að meðaltali hærri lækkun höfuðstóls en einstaklingar. Að sama skapi fengu heimili með börn hærri leiðréttingu en barnlaus.
Í skýrslunni eru gefnar tvær meginskýringar á upphæð lækkunar höfuðstóls eftir þjóðfélagshópum. Annars vegar skulda hinir tekjuhærri að jafnaði meira en fjölskyldur með lægri tekjur, hinir eldri minna en þeir sem yngri eru, stórar fjölskyldur skulda meira en hinar minni og íbúar landsbyggðarinnar skulda lægri upphæðir en þeir sem búa á höfuðborgarsvæðinu vegna lægra íbúðaverðs. Hins vegar er lækkun höfuðstóls mismunandi eftir því hvaða fyrri úrræði íbúðareigendur höfðu nýtt sér.
Ef rýnt er í niðurstöðurnar eftir tekjuhópum kemur í ljós að þeir sem eru í næst lægsta tekjuhópnum fær minnstu lækkunina að meðaltali. Þeir sem eru í hæsta tekjuhópnum fá mest. Fer meðalfjárhæð leiðréttingar stighækkandi eftir því sem farið er ofar í tekjustigann.
Hlutfallslega flestir sóttu um höfuðstólslækkun í sveitarfélögunum í nágrenni Reykjavíkur eða 81 prósent þeirra sem voru með eftirstöðvar miðað við árið 2013.
Hlutfallslega fæstir sóttu um á Norðurlandi vestra eða 73 prósent. Í Reykjavík sóttu 78 prósent um skuldalækkun, tæplega 22 þúsund heimili af þeim liðlega 28 þúsund heimilum sem skulduðu árið 2013.
Þau heimili sem greiddu auðlegðarskatt vegna ársins 2013 og fengu lækkun höfuðstóls voru alls 1.250 eða liðlega 2 prósent þeirra sem fengu höfuðstólslækkun. Fjárhæðin nam 1,5 milljörðum króna og náði til fjórðungs þeirra heimila sem greiddu auðlegðarskatt. Meðallækkun skulda heimila sem greiddu auðlegðarskatt var 1,2 milljónir króna.