„Íslenskar útgerðir mala gull. Eigendur þeirra fá gefins stærstu auðlind þjóðarinnar, borga ekkert fyrir rentuna og fá að borga eins lítið í skatt og þeim dettur í hug," sagði Bragi Páll Sigurðsson rithöfundur í ræðu sinni á mót,mælafundinum á Austurvelli í gær.
"Útgerðirnar halda að við getum ekki án þeirra verið. En það er akkúrat öfugt," hélt hann áfram og bætti við: "Útgerðirnar gætu aldrei starfað ef það væri ekki fyrir íslenskan almenning, íslenska sjómenn og fólkið í fiskvinnslunni. En í staðinn fyrir að auðlindin vinni í þágu þjóðarinnar þá er hún einkaeign örfárra moldríkra einstaklinga. Ég segi þjóðnýtum þær. Fáum þennan pening inn á okkar bankareikning. Stöðvum arðránið,“ sagði Bragi Páll í ræðu sinni og var ákaft fagnað af nokkur þúsund fundarmönnum.
Mikill hugur var í mómælendum fyrir framan Alþingishúsið og öskraði fólk hástöfum "Vanhæf ríkisstjórn" í anda fyrri mótmæla á árum áður þegar bankahrunið var enn í fersku minni fólks.
Búist er við því að áþekk mótmæli haldi áfram næstu daga, jafnvel vikur því eins og einn fundarmanna orðaði það: "Þó svo þessi ríkisstjórn hafi ekki áhuga á venjulegu fólki þá berum við hag alls almennings fyrir brjósti."