Jónas Kristjánsson, fyrrum ritstjóri DV, bloggari og þjóðmálarýnir, er orðinn spenntur að fá að vita hvort forsendur borgaralauna ganga upp.
Eins og Hringbraut fjallaði um í fréttaskýringaþættinum Kvikunni á dögunum hafa Píratar lagt fram þingsályktunartillögu um að skoða kúvendingu kerfisins, leggja niður bótakerfi en greiða öllum þegnum mannsæmandi upphæð og spara með því annan kostnað. Ljóst er þó að kostnaðarauki verður af þessu en tillaga Pírata gengur einmitt út á að láta reikna hann út sem og ýmis önnur samfélagsáhrif.
Jónas hefur nú póstað á vefsvæði Pírata eigin athugun um borgaralaun þar sem hann leitar frekari upplýsinga.
„Borgaralaun verða að miðast við, að ríkið greiði jafnframt kostnað við hágæða heilsuþjónustu og skólagöngu að norðurevrópskum hætti. Þurfa samt að vera svo há, að þau framfæri þá, sem ekki geta unnið, námsfólk, öryrkja, sjúklinga og aldraða. Á móti kemur afnám bóta og skattur af borgaralaunum og yfirfærslum milli mynta. Dæmið gengur varla upp, meðan hluti þjóðartekna rennur framhjá skiptum. Stöðva þarf hækkun í hafi í sjávarútvegi og stóriðju og koma á fullri auðlindarentu í þessum greinum. Rentan ákveðist í útboðum. Restin fæst með því að lækka vinnulaun og lífeyri úr sjóðum að hluta upp í borgaralaun. Til dæmis um eina krónu á móti hverjum tveim,“ skrifar Jónas.
Jónas heldur áfram undir millifyrirsögninni: Svona virka borgaralaun
„Borgaralaun gætu verið svona: Allir fá 400.000 krónur á mánuði. Kostar 1200 milljarða. Frá því dragast 400 milljarðar í skatta, svo að nettó fjárþörf er 800 milljarðar. Á móti sparast 100 milljarðar í afnámi örorku, atvinnubóta og ellilífeyris ríkisins. Skattur á fjármagnstilfærslur milli mynta að frönskum hætti gæfi 100 milljarða. Full auðlindarenta á kvótaveiðar og stóriðju og fullur vaskur á ferðaþjónustu gæfi 100 milljarða. Skattur á fjármagnstekjur til jafns við launatekjur gæfi 100 milljarða. Restin, 400 milljarðar, næðist í lækkun launa og lífeyris úr sjóðum um 50% á móti borgaralaunum.
Allar tölur eru hér gizkaðar, án ábyrgðar og kalla á leiðréttingar talnafróðra.“
Í fyrrnefndum þætti Kvikunnar á Hringbraut ræddi Haldóra Mogensen fyrir hönd Pírata marga kosti upptöku borgaralauna en sagði þó að Píratar hefðu ekki enn myndað sér skoðun.
Brynjar Níelsson, þingmaður Sjálfstæðisflokksins, var til andsvara og taldi að eðli mannskepnunnar væri breyskt og því myndi fólk misnota kerfið.