Auðlindagjaldið fer allt í landbúnað

Vilhjálmur Bjarnason, þingmaður Sjálfstæðisflokksins, sagði í sunnusdagsmræðunni á Hringbraut í morgun, að andvirði þess gjalds sem sjávarútvegurinn greiðir fyrir afnot af auðlindinni, renni í styrki til landbúnaðarins.

Vilhjálmur og Willum Þór Þórsson, þingmaður Framsóknarflokksins, skiptust á skoðunum í þættinum. Vilhjálmur vill meina að þau markmið sem stuðst hefur verið við með öllum búvörusamningum hafi ekki gengið eftir. Lögbýlum hafi fækkað og kerfið sé dýrt.

Willum Þór tók undir að hluta, en sagði rangt að missa móðinn og í nýjum búvörusamningi sé gert ráð fyrir mörgum breytingum, öllum til bóta.