Átvr segir vigdísi fara með rangt mál

ÁTVR hefur brugðist við ummælum sem Vigdís Hauksdóttir formaður fjárlaganefndar og fleiri hafa síðustu daga látið falla.

„Vegna umræðu um rekstur og afkomu ÁTVR í fjölmiðlum vill ÁTVR taka fram að allt frá því að ÁTVR var komið á fót hefur verslunin verið rekin með hagnaði. Yfirleitt hefur hagnaðinum verið ráðstafað beint í ríkissjóð,“ segir í yfirlýsingu sem hefur verið birt á heimasíðu ÁTVR.

Með er birt taflan að ofan, árlegur hagnaður síðustu sex ár og tilsvarandi greiðslur í ríkissjóð.

Samtals á þessum sex árum hefur ÁTVR hagnast um 7.7 milljarða af rekstri sínum og greitt til ríkissjóðs um 7.1 milljarða.

„Nánast allur rekstrarhagnaður ÁTVR er því greiddur beint til ríkissjóðs. Vangaveltur um að  rekstur ÁTVR sé ekki að skila hagnaði eiga því ekki við nein rök að styðjast.“

Visir.is hefur bent á að í umræðu á útvarpsstöð hafi Vigdís Hauksdóttir sagt að rekstur ÁTVR skilaði engum arði til ríkisins. Það er alrangt miðað við tölur ÁTVR.