Íslensku atvinnumennirnir í enska boltanum verða heimsóttir í fótboltaþættinum 433 á Hringbraut í kvöld, en síðustu vikur hafa birst ítarleg viðtöl við kappana í þáttunum sem vakið hafa mikla athygli.
Í þætti kvöldsins klippir Hörður Jónsson saman það helsta og besta sem kapparnir sögðu í þáttunum, en viðmælendurnir eru Aron Einar Gunnarsson hjá Cardiff, Eiður Smári Guðjohnsen hjá Bolton, Gylgi Þór Sigurðsson hjá Swansea, Jóhann Berg Guðmundsson hjá Charlton og Kári Árnason hjá Rotherham.
Margt forvitnilegt hefur komið fram í þessum þáttum um sýn strákanna á boltann, líf þeirra í atvinnumennskunni og hvað þeir eru að gera utan vallar.
Þátturinn er frumsýndur klukkan 21.15 í kvöld.