Atvinnumálin þokast í rétta átt

Tæpur ára­tugur er nú síðan hrika­legar aðstæður sköp­uð­ust í heims­bú­skapn­um, og versta fjár­málakreppa frá Krepp­unni miklu á þriðja ára­tug síð­ustu ald­ar, skall á. 

Van­traust skap­að­ist á fjár­mála­mörk­uð­um, hús­næð­is­verð féll og atvinnu­leysi jókst mik­ið. Svo til alls staðar í heim­inum versnuðu atvinnu­horfur og nýr og alvar­legri veru­leiki blasti við.

Með for­dæma­lausum stuðn­ings­að­gerðum seðla­banka og rík­is­sjóða má segja að hörm­ungum hafi verið afstýrt. Ben Bern­anke, fyrr­ver­andi seðla­banka­stjóri Banda­ríkj­anna, segir í bók sinni, The Courage to Act, sem kom út árið 2015, að innan við sól­ar­hring hafi munað á því, að algör ringul­reið hefði skap­ast á mörk­uð­u­m. 

Nánar á

https://kjarninn.is/skyring/2018-08-06-thratt-fyrir-allt-thokast-atvinnumalin-i-retta-att/