Forráðamenn MS hyggjast taka þátt í uppbyggingu gamla miðbæjarins á Selfossi sem á að rísa þar á næsta ári, en þar verður gömlum húsum af Suðurlandi gert hátt undir höfði, svo og andrúmi og atvinnuháttum liðinnar aldar.
Þetta kom fram í þættinum Atvinnulífinu á Hringbraut í gærkvöld, en þáttinn má sjá hér á vef stöðvarinnar. Þar heimsækir Sigurður K. Kolbeinsson Ara Edwald og hans fólk hjá MS á Bitruhálsi og kynnir sér í þaula mjólkurframleiðslu á Íslandi, hagræðingu í greininni og nýsköpun, en MS hyggst taka þátt í \"ævintýrinu\" á Selfossi með því að endurgera gömlu mjólkurstöðina fyrir austan í nýja \"gamla þorpinu\" og verður þar Skyrheima á finna í framtíðinni, einskonar safn til sögu skyrgerðar hér á landi, en íslenska skyrið hefur sem kunnugt er slegið í gegn úti í heimi á síðustu árum - og er orðin þekktasta búvara Íslendinga frá upphafi.
Atvinnulífsþættirnir um MS verða tveir, sá fyrri í kvöld tekur meðal annars á útflutningnum á skyrinu, auk þess sem ostar og hefðbundin mjólkurvinnsla kemur við sögu. Í næsta þætti verður svo sýnt hvernig mjólkin er gerilsneydd, átöppuð og síðan dreift til landsmanna, en auk þess er farið í heimsókn á fyrirmyndar kúabú fyrir austan fjall þar sem Birna bóndi á Reykjum á Skeiðum tekur á móti sjónvarpsfólki. Og þar er sko tæknin aldeilis í fyrirrúmi.
Atvinnulífið er á dagskrá öll þriðjudagskvöld klukkan 20:30, en þátturinn er endursýndur í dag og um næstu helgi.