Atvinnulífið: rússabannið burt!

Viðskiptabann ESB og Bandaríkjanna á Rússland hefur haft mjög neikvæð áhrif á íslenskt atvinnulíf en ætla má að íslensk fyrirtæki í sjávarútvegi og landbúnaði verði af um 15 milljarða króna tekjum á ári vegna stuðnings stjórnvalda við það.

Þetta segir í tilkynningu frá Samtökum atvinnulífsins í dag, en þar kemur fram að áhrif á vöruútflutning þeirra þjóða sem styðja bannið hafi verið hlutfallslega mest á Íslandi. ESB hafi nú framlengt bannið um sex mánuði en til standi að það falli niður í lok janúar 2016.

\"Atvinnulífið hefur skilning á alvarlegri stöðu mála í Úkraínu og að framferði Rússlands þar og á Krímskaga verði ekki látið óátalið. Ákvörðun Íslands um þátttöku í aðgerðunum er tekin í því ljósi. Það veldur hins vegar miklum vonbrigðum að ESB hefur ekki ljáð máls á aðgerðum til að draga úr neikvæðum áhrifum stuðnings Íslands við viðskiptabannið, t.d. með auknum markaðsaðgangi fyrir íslenskar sjávarafurðir,\" segir í tilkynningu SA.

Þar segir ennfremur að viðskiptabanninu, sem snýr að banni á vopnaviðskiptum og fjármögnun fjármálastofnana í Rússlandi, hafi Rússar svarað með því að banna innflutning matvæla. Sala á íslenskum sjávarafurðum hafi farið vaxandi til Rússlands á undanförnum árum og skipti miklu fyrir þjóðarbúið: \"Þar sem Íslendingar leggja hvorki stund á vopnaviðskipti né fjármögnun rússneskra banka hefur viðskiptabann okkar á Rússland engin áhrif, en bann þeirra við innflutningi á matvælum mjög mikil áhrif á Ísland,\" segja forkólfar SA.

Tilkynningin endar með þessum orðum: \"Íslandi ber að standa með bandalagsþjóðum sínum. Það er þó ekki forsvaranlegt að gífurlegur kostnaður af þessum táknrænu aðgerðum Íslands í utanríkismálum leggist nánast alfarið á eina atvinnugrein, án þess að gripið sé til nokkurra mótvægisaðgerða til að lágmarka tjónið. Það er lágmarkskrafa að íslensk stjórnvöld skilyrði áframhaldandi stuðning við viðskiptabannið við það að á móti komi aukinn markaðsaðgangur að Evrópumarkaði fyrir sjávarafurðir. Það er ekki eðlilegt að sjávarútvegurinn beri hitann og þungann af utanríkisstefnu Íslands í þessu máli.\"