Dýpsta borholan er á reykjanesi

Atvinnulífið er á dagskrá Hringbrautar kl. 20.00 í kvöld en þá heimsækir þáttastjórnandinn Sigurður K. Kolbeinsson Jarðboranir hf. og ræðir þar við Sigurð Sigurðsson forstjóra um starfsemi fyrirtækisins sem hefur m.a. haslað sér völl á erlendri grundu með þjónustu sína.  Á Reykjanesi er um þessar mundir verið að bora dýpstu borholu landsins fyrir HS Orku með bornum Þór en samtímis er borað við Þeistareyki með bornum Óðni fyrir Landsvirkjun.  Í þættinum verður m.a. útskýrt hvernig jarðborun fer fram og rætt við Sveinbjörn Bjarnason verkefnisstjóra á Þeistareykjum.  Jarðboranir hófust fyrst á Íslandi árið 1945 og þá var fyrirætkið í eigu ríkisins en það breyttist með einkavæðingu í byrjun 10. áratugarins.  Kvikmyndatöku annaðist Friðþjófur Helgason.