Atvinnulífið er á dagskrá Hringbrautar kl. 20.00 í kvöld. Í þessum þætti verður áfram fjallað um sjávarútveginn og Útgerðarfélag Akureyringa heimsótt en það er eitt af elstu útgerðarfélögum á Íslandi, stofnað 1945 og komst í eigu Samherja árið 2011. Auk útgerðar verður aðallega fjallað um nýja verksmiðju og fiskvinnslu sem fyrirtækið tók í notkun á síðasta ári og er að sögn framkvæmdastjórans Gests Geirssonar ein sú fullkomnasta við N-Atlantshaf. Gríðarleg sjálfvirkni á sér stað þar sem störfum hefur fækkað í kjölfarið og hagkvæmni aukist. Allt er nýtt úr fisknum sem kemur á land allt frá haus að sporði. Við fylgjumst með því hvernig fiskflak er skorið til með vatnsskurðarvél sem hönnuð er af íslenskum framleiðanda. Umsjónarmaður er Sigurður K. Kolbeinsson og myndatökur annaðist Friðþjófur Helgason.
Fullkomnasta fiskvinnsla norðurhafa
Fleiri fréttir
Nýjast