Atvinnulífið heimsækir haga í kvöld

Stórfyrirtækið Hagar verður heimsótt í þætti Atvinnulífsins á Hringbraut í kvöld en óhætt er að segja að þar sé í mörg horn að líta, enda um stærsta verslunarfyrirtæki Íslands að ræða.

Þeir Friðþjófur Helgason, kvkimyndatökumaður og Sigurður K. Kolbeinsson, umsjármaður heimsóttu fyrirtækið á dögunum og kynntust fjölþættri starfsemi Haga svo úr varð þriggja þátta röð. Í þætti kvöldsins heimsækja þeir fyrirtækin Hýsingu, Zara, Bónus og Útlilíf sem öll eru í 100% í eigu Haga hf. Fyrirtækin eru hvert öðru ólík og fróðlegt verður að fylgjast með því sem forsvarsmenn þeirra upplýsa áhorfendur Hringbrautar um að þessu sinni.

Síðasti hluti heimsóknar Atvinnulífsins í Haga er svo á dagskrá að viku liðinni, en þættirnir eru frumsýndir öll þrjðjudagskvöld klukkan 20:30.