Sjónvarpsþátturinn Atvinnulífið á Hringbraut heimsækir hvert fyrirtækið af öðru út um land allt, fræðist um sögu þeirra, sérstöðu og framleiðslu - og nú í kvöld taka forsvarsmenn Eldhesta í Ölfusi á móti Sigurði K. Kolbeinssyni umsjármanni sem vitaskuld stígur á bak.
Þáttum Sigurðar er ætlað að sýna þá fjölbreytni sem ríkir í atvinnulífi landsmanna og gefa fólki færi á að fræðast um alla þá ólíku starfsemi sem leyst er af hendi inni á gólfinu sem fæstir landsmenn hafa nokkurn tíma séð. Í þætti kvöldsins er tekið hús á einni stærstu hestaleigu landsins sem státar af 300 hrossum sem þjóna þúsundum ferðamanna, en hjá henni starfa 60 starfsmenn, margir hverjir erlendir áhugamenn um íslenska hestinn sem bjóða upp á reiðnámskeið, reiðtúra, þjálfun og sýningar.
Íslenski hesturinn er fyrir margt löngu orðinn snar þáttur í íslenskri ferðaþjónustu og fer hlutur hans þar stöðugt vaxandi eins og áhorfendur Atvinnulífsins munu fræðast um í kvöld.
Þátturinn er frumsýndur klukkan 20.00.