Atvinnulífið heimsækir eimskip flytjanda kl. 22.00 í kvöld

Atvinnulífið er á dagskrá Hringbrautar kl. 22.00 í kvöld en þetta er næst síðasti

þátturinn á vorönn 2016.  Að þessu sinni verður skyggnst bak við tjöldin hjá Eimskip Flytjanda

sem hefur verið leiðandi fyrirtæki í landflutningum í áraraðir.  Áhorfendur fá að kynnast

þeirri sérhæfingu sem fyrirtækið býður viðskiptavinum sínum hvað varðar flutning á kælivöru

og fiski sem ekið er frá fiskmörkuðum víðs vegar um land að Höfuðborgarsvæðinu.  Jafnframt

útskýra viðmælendur þá þjónustu sem er í boði gagnvart fyrirtækjum og einstaklingum, m.a.

pakka afgreiðslu o.þ.h.  Umsjónarmaður er Sigurður K. Kolbeinsson en kvikmyndatöku annaðis

Friðþjófur Helgason