Atvinnulífið heimsækir advania í kvöld

Eitt helsta og framsæknasta upplýsingatæknifyrirtæki Íslands, Advania verður sótt heim í sjónvarpsþættinum Atvinnulífið á Hringbraut í kvöld, en fyrirtækið hefur vaxið mjög og dafnað á síðustu árum.

Ægir Már Þórisson er nýr í brúnni hjá þessu athyglisverða fyrirtæki og hann leiðir áhorfendur um deildir þess og hæðir við Sundin blá í Reykjavík, en óhætt er að segja að það sé í mörg horn að líta innan dyra í þessu upplýsingamusteri.

Það eru Sigurður K. Kolbeinsson og Friðþjófur Helgason sem hafa veg og vanda að þáttagerðinni sem fyrr, en þeir hafa unnið tugi þátta um íslensk atvinnulíf á síðustu misserum sem hafa opnað almenningi leið inn að innsta gafli margra þróttmestu og áhugaverðustu fyrirtækja landsins.

Atvinnulífið hefst klukkan 20:30 á Hringbraut í kvöld.