Rúmlega 300 stjórnendur úr atvinnulífinu skora í dag á Alþingi að lækka tryggingagjaldið. Í áskoruninni kemur fram að það gangi vel í atvinnulífinu á mörgum sviðum og atvinnuleysi hafi minnkað hratt.
Þrátt fyrir það sé tryggingagjald sem rennur m.a. til greiðslu atvinnuleysisbóta enn í hæstu hæðum. Árlegt gjald er um 20 til 25 milljörðum króna hærra en það ætti að vera, að því er segir í tilkynningu Samtaka atvinnulífsins vegna téðrar samstöðu íslenskra stjórnenda í atvinnulífinu.
Þar segir að engin áform virðist vera um að lækka tryggingagjaldið árið 2016 þrátt fyrir að atvinnuleysi sé hverfandi. Það hafi verið 3% síðustu 12 mánuði og fari enn minnkandi, en tryggingagjaldið sé svipað og þegar atvinnuleysi hafi verið 8-9% á árunum 2009-2010.
Þessu mótmæli stjórnendur fjölbreyttra fyrirtækja af öllum stærðum og gerðum út um allt land og hvetji Alþingi til að láta verkin tala og lækka gjaldið. Fram hafi komið ítrekað á undanförnum tveimur árum hjá fulltrúum allra flokka að rétt væri að lækka gjaldið.