Atvinnulífið byrjar á ný á hringbraut

Atvinnulífið hefur aftur göngu sína á Hringbraut í kvöld, en þar mun Sigurður K. Kolbeinsson sem fyrr heimsækja íslensk fyrirtæki og segja frá sögu þeirra og sérstöðu í fylgd forráðamanna.

Þátturinn í kvöld er helgaður því framsækna fyrirtæki sem Icelandair Cargo er, en fyrirtækið er byrjað að nota breiðþotur í flutningum sínum eins og glögglega kemur fram í þætti kvöldsins sem hefst klukkan 20:30 og verður á þeim tíma það sem eftir lifir veturs.

Frá og með miðjum apríl mun félagið bjóða upp á fraktflutninga með Boeing 767 breiðþotum. Icelandair, systurfélag Icelandair Cargo, tekur vélarnar í notkun í farþegakerfi félagsins á vormánuðum og Icelandair Cargo mun nýta fraktrými vélanna til að flytja vörur til og frá Íslandi. Þessar vélar munu stórauka flutningsmöguleika á frakt í leiðarkerfi Icelandair Cargo. Vélunum verður flogið daglega til Bandaríkjanna og svo áfram til Evrópu. Eins og fram kemur í þættinum er kosturinn við þessar vélar sá að þær flytja allt að fjórum sinnum meira magn af frakt í hverri ferð en núverandi vélakostur hefur gert. Auk þess er hleðsla og afhleðsla vélanna mun einfaldari þar sem notast verður við pallkerfi líkt og í fraktvélum. það bætir vörumeðferð og flýtir fyrir hleðslu.  

Icelandair Cargo býður upp á beint flug til yfir 50 áfangastaða í Norður-Ameríku, Evrópu og á Íslandi.

Atvinnulífið er frumsýnt á Hringbraut klukkan 20:30 í kvöld og endursýnt strax klukkan 22:30.