Atvinnulífið: almenni lífeyrissjóðurinn

Atvinnulífið er á dagskrá Hringbrautar í kvöld, en þar fjallar umsjármaðurinn Sigurður K. Kolbeinsson um Almenna lífeyrissjóðinn og tekur hús á stjórnendum og starfsfólki hans.

Lífeyrissjóðsmálin á Íslandi eru í brennidepli, jafnt lífeyririnn sjálfur, ávöxtun sjóðanna, fjárfestingar og blessuð verðtryggingin sem oft og tíðum hefur verið sögð eiga heimili og varnarþing hjá þessum sterkustu sjóðum landsmanna.

Í þætti kvöldsins kynnast áhorfendur innra starfi þessa sterka lífeyrissjóðs, en þar er vissulega í mörg horn að líta, enda fylgir því mikil ábyrgð að ávaxta þetta eitt allra mikilvægasta pund allra landsmanna.

Atvinnulífið er á dagskrá Hringbrautar klukkan 20:30 í kvöld.