Atvinnulífið á makrílveiðum í kvöld

Þátturinn Atvinnulífið er á dagskrá Hringbrautar kl. 20 í kvöld og endursýndur kl.22, en þátturinn er með þeim vinsælli sem stöðin sýnir.  Atvinnulífið mun fjalla um sjávarútveginn í næstu 3 þáttum og í kvöld verður farið á makrílveiðar með Beiti NK 123 sem er í eigu Síldarvinnslunnar í Neskaupsstað.  Beitir er stærsta uppsjávarveiðiskip Íslendinga um þessare mundir, alls 86 m á lengd og getur tekið við 3.200 tonna afla.  Umsjónarmaður er Sigurður K. Kolbeinsson sem fór í veiðiferð með skipverjum nú nýlega ásamt Friðþjófi Helgayni myndatökumanni.  Í þættinum er rætt við skipverja og veiðiaðferðir sýndar og útskýrðar fyrir áhorfendum.  Í næsta þætti verður síðan spjallað við forstjóra Síldarvinnslunnar um vinnsluna í landi og fleirs sem tengist rekstri fyrirtækisins sem er eitt stærsta sjávarútvegsfyrirtæki landsins.