Samkvæmt vinnumarkaðsrannsókn Hagstofu Íslands voru að jafnaði 202.800 manns á aldrinum 16-74 ára á vinnumarkaði í mars 2017.
Þegar tölur um vinnuafl eru skoðaðar þá hefur atvinnuleysi ekki mæst jafn lágt í Vinnumarkaðsrannsókn Hagstofu Íslands síðan í nóvember árið 2007 þegar atvinnuleysi á Íslandi mældist 1,3%.
Nú er hlutfall starfandi af mannfjölda 83,4% og hlutfall atvinnulausra af vinnuafli var 1,7%. Atvinnulausum fækkaði um 3.800 manns.
Þetta er minnsta atvinnuleysi á Íslandi frá því fyrir hrunið árið 2008.