Atvinnuleysi mældist 3,25% í júlí

Samkvæmt vinnumarkaðsrannsókn Hagstofu Íslands voru að jafnaði 197.500 á aldrinum 16 til 74 ára á vinnumarkaði í júlí 2015, sem jafngildir 84,5% atvinnuþátttöku.

Af þessum fjölda voru 191.200 starfandi og 6.300 án vinnu og í atvinnuleit. Hlutfall starfandi af mannfjölda var 81,8% og hlutfall atvinnulausra af vinnuafli var 3,2%. Samanburður mælinga fyrir júlí 2014 og 2015 sýnir að atvinnuþátttaka minnkaði um 0,5 prósentustig. Hlutfall starfandi fólks af mannfjölda minnkaði um 0,3 stig og atvinnuleysi var nánast það sama og það var í júlí 2014.

Þessar tölur Hagstofunnar sýna að atvinnuþátttaka hér á landi er með því hæsta sem þekkist í OECD-löndunum sem íslendingar bera sig oft og einatt saman við.