Atvinnuleysi hefur ekki mælst lægra í mælingum Hagstofu Íslands síðan í nóvember 2007 þegar það mældist 1,3%. Samanburður mælinga í desember 2014 og 2015 sýnir að það fjölgaði í vinnuaflinu um 4.800 manns, atvinnuþátttakan jókst því um eitt prósentustig.
Fjöldi starfandi jókst um 9.100 og hlutfallið af mannfjölda um 2,9 stig. Atvinnulausum fækkaði um 4.300 manns og hlutfall þeirra af vinnuaflinu minnkaði um 2,4 stig.
Samkvæmt Vinnumarkaðsrannsókn Hagstofunnar voru að jafnaði 188.500 manns á aldrinum 16 til 74 ára á vinnumarkaði í desember 2015, sem jafngildir 81% atvinnuþátttöku. Af þeim voru 184.900 starfandi og 3.600 án vinnu og í atvinnuleit. Hlutfall starfandi af mannfjölda var 79,4% og hlutfall atvinnulausra af vinnuafli var 1,9%