Atvinnuleysi í júnímánuði var 2,6% en atvinnulausum fækkaði um 400 að meðaltali frá maímánuði, eða sem nemur 0,3 prósentustigum. 4,757 voru því á atvinnuleysisskrá í júní og fer þeim fækkandi á milli mánaða.
Þetta kemur fram í nýju yfirliti Vinnumálastofnunar um stöðu á vinnumarkaði í júní, sem kom út í dag.
Þar kemur fram að karlar á atvinnuleysisskrá hafi að meðaltali verið 2.086 í júní samanborið við 2.671 konur. Fleiri konur voru því skráðar atvinnulausar í júní: Atvinnuleysi mældist 3,2% á meðal kvenna og 2,1% á meðal karla.
Sé horft á atvinnuleysi eftir landsvæðum má sjá að atvinnulausir voru flestir á Suðurnesjum, en þar mældist atvinnuleysi 3,1%. Minnst var atvinnuleysið á Norðurlandi vestra eða 1,2%. Atvinnulausum fækkaði að meðaltali um 151 á höfuðborgarsvæðinu og stóð í 2,9% í júnímánuði en á landsbyggðinni var atvinnuleysi 2,1% og fækkaði atvinnulausum um 249 frá maímánuði.
Fjöldi þeirra sem höfðu verið atvinnulausir til lengri tíma fór fækkandi á milli mánaða, en fjöldi þeirra sem höfðu verið atvinnulausir í meira en eitt ár samfellt var 1.144 í lok júní, og fækkaði þeim um 75 á milli mánaða.
Ungu fólki á atvinnuleysisskrá fer sömuleiðis fækkandi, en alls voru 740 á aldrinum 18-24 atvinnulausir í lok júní, samanborið við 845 í lok maí.