Fyrir utan ókeypis pylsur er fátt sem sameinar íslensku þjóðina meira en íslenskir sjónvarpsþættir. Við elskum að hafa skoðun á þeim. Ég líka. Í kvöld byrjaði Brot á RÚV. Þeir verða væntanlega umræðuefni kaffistofa morgundagsins og jólaboða helgarinnar.
Ég held að flestar alvöru löggur eigi það sameiginlegt að fá reglulega nettan kjánahroll yfir svona íslenskum lögguþáttum. Þetta eru vissulega skáldsögur og við verðum að reyna að muna að þeir sem skrifa þættina hafa að sjálfsögðu sitt skáldaleyfi til að reyna að gera lögregluna áhugaverða og áhorfendavæna. Mér fannst það t.d. takast mjög vel í Ófærð.
Miðað við fyrsta þátt sýnist mér því miður að það takist ekki jafn vel í Brot. Ég átti mjög erfitt með að losna við kjánahrollinn einhverra hluta vegna. Það var óþarflega margt kjánalegt og með engum sýnilegum tilgangi. Það finnst mér pínu óþarfi. Ég væri til í að hafa svona þætti eins nálægt raunveruleikanum og hægt er og að hlutum sé breytt með tilgangi. En kannski er það bara smámunasemi í mér.
Í þættinum fær hin frábæra leikkona Nína Dögg í hendurnar enn eina steríótýpíska, grjótharða og steinrunna fráskilda rannsóknarlögreglukonuna sem flytur eintóna alvarlegar línur á móti jafn alvarlegum starfsfélögum. Samkvæmt íslenskum handritshöfunum eru lögreglustöðvar greinilega allra leiðinlegustu vinnustaðir landsins og lögreglumenn ömurlega óáhugaverðir og flatir karakterar. Það talar enginn í alvörunni eins og þetta fólk. Án gríns. Samræðurnar eru svo kjánalega yfirborðslega eitthvað.
Leiksigur fyrsta þáttarins átti Arnbjörg Hlíf sem ólánsama hjásvæfa fórnarlambs númer eitt. Mér fannst ég oft hafa hitt hennar karakter í vinnunni og það þýðir að hún hafi veri sannfærandi. Markmiði náð. Fyrir utan hana og Nínu þá mæddi minna á öðrum leikurum. Ég var samt glaður að sjá Eddu Íslands á skjánum í öðru alvarlegu hlutverki eftir Undir trénu. Ég hef fulla trú á að hún muni stela nokkrum senum í sínu aukahlutverki í næstu þáttum.
Svo er Björn Thors væntanlegur sem norska löggan sem á að bjarga málunum. Smá svona Broen tenging. Björn er snillingur. Verður áhugavert að sjá hvernig það kemur út. Karakter Kötu er alls engin Saga Noren en það má alltaf vona að það kvikni einhverjir neistar í komandi þáttum.
Fyrstu þáttur af Brot fær því tvær og hálfa stjörnu með von og trú á betri tíð í næstu þáttum. Fylgist með.