Mikið hefur verið rætt um villuna, eða réttara sagt höllina, þar sem Michele Ballarin tók á móti fréttamanni Kveiks í þætti gærkvöldsins. Hreinn Beck hefur deilt í hópinn Fjölmiðlanördar á Facebook skjáskotum af höllinni í Virginíu í Bandaríkjunum sem sýna að hún sé til sölu.
Ballarin hefur lengi verið með yfirlýsingar um að hún ætli að verða fyrirferðamikill aðili á íslenskum flugmarkaði. Fyrst með því að endurreisa WOW Air, síðar að hún ætli að kaupa stóran hlut í Icelandair og nú að hún sé í raun stór hluthafi Icelandair.
„Sager Real Estate er með glæsilega eign til sölu á litlar $29.950.000 að 7500 Ironwood Lane, Warrenton, Virginíu. Fasteignin var kynnt í fyrsta sinn á Íslandi í þættinum Kveik,“ segir Hreinn í færslu sinni.
Síðan er ekki aðgengileg á Íslandi vegna takmarkana. „Áhugasamir geta haft samband við sölumann okkkar, Michele Ballarin sem hefur verið dugmikill starfsmaður okkar frá 2013. Vefur Sager er því miður ekki aðgengilegur frá Íslandi, af ókunnum ástæðum og því hef ég gripið til þess ráðs að pósta þessu hér.“