Áttföldun sekta

Árni Friðleifsson varðstjóri hjá umferðadeild lögreglunnar í Reykjavík ræddi við RÚV um farsímanotkun ökumanna í akstri. Árni segir að sektir séu svo lágar fyrir þessi brot að ökumönnum sé alveg sama hvort þeir eru sektaðir eða ekki.

Ríkissaksóknari hefur sent samgönguráðherra tillögur um verulega hækkun sekta fyrir umferðarlagabrot. Lagt er til að sektir hækki almennt í takt við verðlagsbreytingar.  En að sektir fyrir að nota farsíma við akstur hækki verulega mikið eða úr fimm þúsund krónum í fjörutíu þúsund sem er áttföld hækkun.

Þessum brotum hefur fjölgað og hættan sem þeim fylgir eykst því umtalsvert. Ríkissaksóknari telur að setja þurfi nánari reglur um farsímanotkun í akstri svo sem SMS-sendingar og netnotkun. Slíkar reglur verði líka látnar ná til annars konar tækja.

rtá

Nánar www.ruv.is