Áttan tekur yfir útvarpsstöðina Hringbraut klukkan 18 í dag, föstudaginn 12. maí - á FM 89,1.
Innan klukkustundar munu Ragga Holm, Gulli og Egill Ploder taka við stöðinni með ferskri dagskrá og tónlist alla daga vikunnar.
Áttan mun halda úti dagskrá frá kl. 7 til 18 en tónlist mun lifa allan sólarhringinn á stöðinni að hætti Áttunnar.
Útvarpsstjóri og eigandi Áttunnar er Egill Ploder.