Áttaði sig ekki á því hvað væri í gangi

Alexsandra Bernharð, annar þáttastjórnandi hlaðvarpsins Þokunnar, hefur tjáð sig um hljóðbrot úr þættinum sem farið hefur á flug á samfélagsmiðlum síðustu daga. Hún segir að þakklæti sé efst í huga hennar og þakkar sérstaklega fyrir þau skilaboð og stuðning sem hún hefur fundið fyrir á síðustu dögum.

Málið hófst þegar áhrifavaldurinn og ljósmyndarinn Helgi Ómarsson vakti athygli á neikvæðum ummælum annars þáttastjórnandans, Þórunnar Ívarsdóttur, í garð Alexsöndru. Hann sagði að um væri að ræða andlegt ofbeldi i vinkonusambandi og þetta væri því miður ekki einsdæmi.

„Ég er til staðar ef hún þarf mig, það er mín ábyrgð,“ sagði Helgi í myndbandi á Instagram og greindi frá því að hann hafi sjálfur gengið í gegnum svipaða reynslu.

Fréttablaðið fjallaði um málið, en Alexsandra sagði í viðtali við miðillinn að hún væri í raun í áfalli eftir að umræðan fór á flug, og sagðist ekki hafa áttað sig á því sem hafi fengið að viðgangast.

Í gær var greint frá því að Þórunn hafi deilt myndskeiði af sér á Instagram og fjallar um málið. Í myndbandinu sést hún biðja vinkonu sína, Alexsöndru, afsökunar á meðan hún grætur. Hún biðst afsökunar á því hvernig hún hefur komið fram við hana, án þess að hafa gert sér grein fyrir því. Þá vonast Þórunn til þess að Alexsandra fyrirgefi henni og segist ætla að vinna í sínum málum.

Sjá einnig: Þórunn Ívars biðst afsökunar hágrátandi: „Ég vissi ekki hvað ég var að gera“