Átta nýjir virkjunarkostir

Lagt er til að átta nýir virkjunarkostir bætist í orkunýtingarflokk rammaáætlunar, tíu virkjunarkostir fari í verndarflokk og tíu í biðflokk. Sigrún Magnúsdóttir, umhverfis- og auðlindaráðherra, mælti í dag á Alþingi fyrir tillögu til þingsályktunar um áætlun um vernd og orkunýtingu landsvæða, sem vanalega er nefnd rammaáætlun.

Ráðherra lagði fram þingsályktunartillöguna að höfðu samráði við Ragnheiði Elínu Árnadóttur, iðnaðar- og viðskiptaráðherra. Tillagan er samhljóða niðurstöðum verkefnisstjórnar 3. áfanga rammaáætlunar.

Í máli ráherra koma þetta fram: \"Ég mæli hér fyrir tillögu sem er í senn öflug orkunýtingaráætlun, á sama tíma og hún er metnaðarfull verndaráætlun. Fyrirliggjandi tillaga felur í sér mikla möguleika til orkuöflunar eða rúmlega 1400 MW. Til samanburðar vil ég benda á að uppsett afl allra núverandi virkjana á Íslandi er um 2500 MW. Á sama tíma er lagt til að mörg mikilvæg svæði verði sett í vernd,“´.

Í tillögunni er stór biðflokkur með virkjunarkostum til skoðunar í framtíðinni.