Átta manns í vettvangseftirlit

Sérstakir starfsmenn á vegum Sýslumannsins á höfuðborgarsvæðinu munu ganga á milli húsa þar sem leikur grunur á ólöglegri skammtímaleigu innan Airbnb gistikerfisins, segir í frétt á turisti.is en nýlega sagði ráðherra ferðamála frá þessum áformum í fréttum Rúv.

Ríkisstjórnin samþykkti nýlega að veita 64 milljónum í tólf mánaða átak þar sem herða á eftirliti með heimagistingu um allt land. Um er að ræða aukafjárveitingu til Sýslumannsins á höfuðborgarsvæðinu. Meðal annars fær embættið til sín átta starfsmenn til viðbótar og eiga fjórir þeirra að sinna vettvangsrannsóknum eftir ábendingum sem berast.

Airbnb er bandarsíks gistimiðlun og hafa yfirvöld í Danmörku til dæmis fengið fyrirtækið í samvinnu og fá dönsk skattayfirvöld afhent gögn um greiðslur til danskra leigusala. Slíkt gæti orðið fyrirmynd fyrir aðrar þjóðir sem reyna að koma böndum á þessa tegund leigumiðlunar.