Átök tveggja fylkinga í bjartri framtíð

Heiða Kristín Helgadóttir, sem þykir líkleg til að blanda sér í formannsslaginn í Bjartri framtíð, segist vel geta starfað áfram með Guðmundi Steingrímssyni innan þingflokks Bjartrar framtíðar, þrátt fyrir það sem á undan er gengið.

Gagnrýni Heiðu Kristínar vóg þungt í atburðarás undanfarna daga. Hún sagðist í viðtali við Kjarnann ekki ætla að taka þingsæti Bjartar Ólafsdóttur, sem er á leiðinni í fæðingarorlof og gagnrýndi um leið harðlega hvernig flokknum hafði verið stjórnað undir forystu Guðmundar. Fram að því hafði fylgi flokksins hríðfallið í skoðanakönnunum, en innanflokksátökin höfðu fram að því ekki verið á yfirborðinu.

Í samantekt Eyjunnar um innanflokksátökin í dag segir að ekki hafi þrýstingurinn minnkað á Guðmund þegar Heiða Kristín sagði í Vikulokunum á Rás 1 að hún væri tilbúin til að taka við formannsembættinu í flokknum. Guðmundur hafi svarað með því að leggja til að æðstu embættum flokksins yrði róterað á milli fólks, hugmynd sem hlaut misjafnar undirtektir.

Það var svo i gær sem tilkynnt var að bæði Guðmundur og þingflokksformaðurinn Róbert Marshall hefðu ákveðið að stíga til hliðar úr sínum embættum innan flokksins. Við val á eftirmanni hefur nafn Bryndísar Pétursdóttur verið nefnt, en nær öruggt má telja að Heiða Kristín blandi sér  í slaginn. Í það minnsta hefur hún skipt um skoðun og ætlar að taka þingsæti Bjartar sem bendir til þess að hún ætli sér að klífa til metorða innan flokksins.

Því er haldið á lofti að innan Bjartrar framtíðar takist á tveir armar, annars vegar fylgismenn Guðmundar og Róberts og hins vegar sá armur sem kom úr Besta flokknum í borginni, en fylgismönnum þess síðarnefnda þykir núverandi forysta ekki hafa haldið í þau gildi sem það framboð stóð fyrir og að flokkurinn hefði yfir sér áru hefðbundins stjórnarmálaflokks. Það endurspeglaðist best í því að fyrr á þessu kjörtímabili skrifaði Jón Gnarr grein í Fréttablaðið þar sem hann skar á öll tengsl við Bjarta framtíð.

Ljóst er að nýs formanns bíður mikið verk. Bæði þarf að hífa upp fylgi flokksins sem nálgast óðfluga pilsner-styrkleika og sjá þarf til þess að atburðir undanfarinna vikna skilji ekki eftir opið sár.

Heiða Kristín segir í viðtali við mbl.is að nú þegar hafi ákveðin hreinsun átt sér stað innan flokksins, bæði í orði og borði. Vísar hún í þá ákvörðun Guðmundar og Róberts að stíga  til hliðar: \"Þetta snýst ekk­ert um per­sónu­lega óvild mína gagn­vart Guðmundi. Hann hef­ur tekið að sér ákveðin embætti og gegna ákveðnu for­ystu­hlut­verki í því og mér fannst það vera frek­ar full­reynt. Við erum full­fær um að geta átt ágæt­is sam­skipti og laus við drama­tík. Ég get tekið að mér að vera leiðin­leg, það er ekk­ert mál. Það þarf alltaf ein­hver að vera í því,\" segir Heiða Kristín við mbl.is.