Átök tefja greiðslur

Valgerður Bjarnadóttir spurði Bjarna Benediktsson á Alþingi í dag hvort hann hafi ekki áhyggjur af því að hluti þess sem innheimtist með bankaskattinum og átti að nota til að koma til móts við sveitarfélög vegna tekkjumissis sem varð á séreignarsparnaði vegna skuldaleiðréttingarinnar.

„Nú er búið að vera hér í salti í meira en ár frumvarp um að þessir peningar fari inn í Jöfnunarsjóð sveitarfélaga. Mig langar til að spyrja ráðherrann hvort hann deili ekki áhyggjum mínum um að þetta skapi sveitarfélögunum mikil vandræði og við sjáum það og heyrum um það fréttir á hverjum degi,“ sagði Valgerður.

„Það hafa verið átök á milli þeirra sem leggja áherslu á að tekjurnar af þessu skili sér í sem líkustum hlutföllum og tekjutapið hefur orðið...“, „...og svo hinna sem segja að það eigi að skila þessum tekjum aftur út til sveitarfélaganna á grundvelli almennu reglnanna í jöfnunarsjóði,“ svaraði ráðherrann.

„Von okkar fólks í þingnefndinni sem hefur haft málið til meðferðar var sú að sveitarfélögin gætu leyst úr þessum ágreiningi innbyrðis, að hægt væri að ræða málið á þeim vettvangi og leiða fram einhverja niðurstöðu með samtali milli sveitarfélaganna. Það hefur því miður ekki orðið raunin. Á meðan hefur málið safnað ryki í þinginu. Það er áhyggjuefni, eins og hv. þingmaður nefnir, og mögulega þarf þingið á einhverjum tímapunkti einfaldlega að höggva á hnútinn.“