Haukur Arnþórsson, doktor í stjórnsýslufræðum, hefur sagt sig úr Framsóknarflokknum. Hann segist nánast hafa fæðst inn í flokkinn. Nú er honum nóg boðið. Hann ber ekki traust til formannsins, Sigmundar Davíðs Gunnlaugssonar.
En hvers vegna? „Flokkurinn hugsar ekki til framtíðar. Þar á ég við uppbyggingu upplýsingasamfélags framtíðar með öllu því sem því fylgir: upplýsingavæðingu frá því opinbera sem kallað er gagnsæi, þátttaka almennings í undirbúningi mála á netinu, breyting opinberrar þjónustu þannig að staðsetning starfsstöðva, starfsfólks og viðskiptavina verði frjáls, ljósleiðarar til landsbyggðarinnar og fleira sem máli skiptir. Ekki eitt einasta verkefni hefur verið sett af stað af núverandi ríkisstjórn á þessu sviði að höfðu samráði við sérfræðinga.“
Haukur segir að hér sé í raun engin byggðastefna, frekar atvinnuvegastefna:
„Ég tel að landsbyggðaþingmenn séu á margan hátt verstu óvinir landsbyggðarinnar,“ segir Haukur í bréfi sem hann hefur skrifað. „Því miður heldur flokkurinn að stuðningur við landbúnað og sjávarútveg sé byggðastefna, en svo er ekki. Það er atvinnuvegastuðningur og hagsmunabarátta.“