„átök hafa alltaf verið hluti af sjálfstæðisflokknum“

Varaformaður Sjálfstæðisflokksins, Þórdís Kolbrún Reykfjörð Gylfadóttir, var í viðtali á Sprengisandi á Bylgjunni í dag. Hörð innanflokksátök eiga sér nú stað innan Sjálfstæðisflokksins. Hefur Davíð Oddsson gagnrýnt forystu síns gamla flokk harðlega í nokkrum Reykjavíkurbréfum vegna þess að flokkurinn taki ekki einarða afstöðu gegn Orkupakka 3. Hafa bæði Þórdís Kolbrún Reykfjörð og Áslaug Arna Sigurbjörnsdóttir svarað Davíð.

Þórdís Kolbrún vildi meina að það væri styrkur Sjálfstæðisflokksins hve margar mismunandi skoðanir rúmist innan hans. Þá viðurkenndi hún að það væri kurr í flokknum. Þórdís segir að önnur ástæða fyrir óeiningu innan flokksins. Nú séu breyttir tímar í íslenskum stjórnmálum. Nýir kjósendur nálgist pólitík á annan hátt en áður viðgengst.

„Átök hafa alltaf verið hluti af Sjálfstæðisflokknum og við höfum alla jafna sótt styrk okkar í það. Við gerum það á ákveðnum forsendum innan ákveðinna ferla, til dæmis á landsfundi. Svo komum við sameinuð fram. Að einhverjir aðilar hafi miklar skoðanir við mig, eða einhverja aðra í þingflokknum eða forystu, það er ekkert nýtt.“